Tuesday, January 8, 2013

Kjúklinga-og spínatbaka.

Mér finnst reglulega gott að fá mér böku eða Quiche í matinn af og til.  Mjög einfalt og ljúffengt. Hægt er að nota hvað sem er í þessar bökur og  ég nota bara það sem ég á til í ísskápnum hverju sinni. Í gær var ég með heilsteiktan kjúkling og það var mikill afgangur af honum svo ég ákvað að nota kjúklinginn í bökuna. 

Létt og ljúffeng máltíð sem ég mæli með að þið prufið.
Kjúklinga-og spínatbaka. 

Deig:
2 bollar fínmalað spelt, bollinn sem ég notaði rúmar 237 ml.
100 g smjör, skorið í teninga
100 ml kalt vatn 
smá salt 

Aðferð:
Skerið smjörið í litla teninga, blandið smjörinu, speltinu og saltinu saman með höndunum í skál. Bætið síðan vatninu saman við smám saman. Smjörið þarf að blandast vel saman við speltið svo þetta tekur nokkrar mínútur. Sláið deiginu upp í myndarlega kúlu , setjið plastfilmu utan um og geymið í kæli í lágmark 30 mínútur.

Takið deigið út úr ísskápnum og fletjið út. Smyrjið bökunarform og setjið deigið í formið. Potið nokkrum sinnum í deigið með gaffli og bakið við 180°C í 8 - 10 mínútur. 

 Fylling:

1 msk ólífuolía
1 - 2 kjúklingabringur
1 rauð paprika, smátt skorinn
1/2 rauðlaukur, smátt skorinn
2 bollar spínat
2 tómatar
1 hvítlauksgeiri, pressaður
1 lítil dós kotasæla
4 egg
80 ml mjólk
salt og nýmalaður pipar 
1 tsk ítölsk kryddblanda
rifinn mozzarella ostur, magn eftir smekk

 Aðferð:

Hitið olíu í potti, skerið grænmetið mjög smátt og steikið við vægan hita. Ég notaði kjúkling sem ég eldaði deginum áður en steikið kjúklinginn á sér pönnu ef þið eigið eftir að elda hann. Skerið kjúklinginn í litla bita. Þegar grænmetið er að verða tilbúið setjið þá spínatið saman við, takið pottinn af hitanum og blandið kjúklingnum og einni dós af kotasælu saman við. Kryddið til með salti og pipar. 
Pískið egg og mjólk saman, kryddið til með salti, pipar og ítalskri kryddblöndu. 

Raðið kjúklinga-og grænmetisblöndunni ofan í bökunarskelina hellið því næst eggjablöndunni yfir. 
Sáldrið rifnum osti yfir bökuna og skerið tómata niður og raðið þeim ofan á. 

Bakið við 180°C í 30 - 35 mínútur, eða þar til osturinn er orðinn fallega brúnn. 
 Lyktin af þessum rétt er dásamleg. Ég fékk mjög gott bökunarform  í IKEA á mjög fínu verði. Það er sérlega gott að baka bökur í þessu formi. 
 Berið bökuna gjarnan fram með hrísgrjónum, fersku salati og jógúrtsósum. 
 Ég náði að frysta nokkrar sneiðar og mikið sem það verður gott að geta gripið með mér eina og eina bökusneið þegar mikið er að gera. 
 Einföld, fljótleg og ljúffeng máltíð.

xxx

Eva Laufey Kjaran

3 comments:

  1. Get ég notað venjulegt hveiti í staðinn fyrir spelt?
    og þá sama magn bara?

    kv.
    Freyja

    ReplyDelete
  2. Já þú getur notað venjulegt hveiti og notar þá sama magn.

    Bestu kveðjur,

    Eva Laufey

    ReplyDelete
  3. ohhhhh mig langar svo íííí...... En ekki séns að ég nenni að búa þetta til :)
    Geturu ekki fryst og sent? :)

    kv. úr Grundó

    ReplyDelete