Friday, January 4, 2013

Döðlukaka með heitri karamellusósu


Í janúar árið 2010 fór ég ásamt vinkonu minni til Oxford í Bretlandi, markmið ferðarinnar var að ná góðum tökum á enskunni og auðvitað að kynnast breskri menningu. Við byrjuðum á að fara í enskuskóla í nokkrar vikur og fórum við að vinna í Oxford, ég á veitingahúsi og vinkona mín á hóteli. Ég var nú ekkert sérlega heppin með vinnustað en  ég náði að kynnast breskri matarmenningu svolítið. Bresk matarmenning heillar mig ekkert svakalega mikið en það eru nokkrir réttir sem mér finnst ótrúlega góðir. Það sem ég tók strax eftir var að bretar eru sérstaklega mikið fyrir eftirrétti, undantekningalaust þá báðu þeir um eftirrétti. Hvort sem það var í hádeginu eða á kvöldin, þeir vildu sinn "pudding" og þar var ég sammála þeim, það er náttúrlega ekkert betra en ljúffengur eftirréttur. 

Vinsælasti eftirrétturinn var Sticky toffee pudding. Mér leist nú ekki vel á hann í byrjun því útlitið er kannski ekki upp á marga fiska en einn daginn þá var ég að vinna með breskri stúlku og hún sagði að ég yrði að smakka þennan eftirrétt, þetta væri nú einu sinni aðal eftirréttur breta þannig það var lítið annað í stöðunni en að smakka réttinn. Í einni pásunni þá fórum við aftur í eldhús og hituðum upp væna sneið af kökunni og helltum karamellusósu yfir, sátum svo ofan á frystikistunni og mmm-uðum til skiptis.
 Þetta var ást við fyrsta smakk ef svo má segja. 

Döðlukaka með dásamlegri karamellusósu

5 msk sykur
120 g smjör, við stofuhita
2 egg
100 g hveiti 
210 g döðlur
1 tsk matarsódi
1/2 tsk kanill
1/2 salt
1/2 vanillu extract, eða dropar
1 1/2 tsk lyftiduft

Aðferð
Byrjið á því að stilla ofninn á 180°C

1. Setjið döðlurnar í pott og látið vatn fljóta yfir. ( Ég mæli með að þið skerið þær í litla bita, ég áttaði mig á því of seint að skera þær í litla bita geri það næst) Hitið döðlurnar og vatnið í potti, þegar vatnið er byrjað að sjóða takið pottinn af hitanum og látið standa í 3 - 4 mínútur. 
2. Bætið matarsódanum saman við eftir 3 - 4 mínútur og hrærið vel í. Setjið blönduna til hliðar. 
3. Hrærið smjör og sykur vel saman eða þar til blandan verður létt og ljós, hrærið eggjunum saman við einu í einu. Sigtið þurrefnin saman og bætið við eggjablönduna ásamt vanillu. Blandið vel saman. 
4. Blandið döðlumaukinu saman við í þremur pörtum, gætið þess að blanda maukinu varlega saman við hveitiblönduna.

5. Smyrjið hringlaga bökunarform (ég notaði 9" eða 24 cm). Mér finnst best að klippa út bökunarpappír og setja í botninn, það auðveldar að ná kökunni úr forminu. 
6. Hellið deiginu í formið og bakið í 30 - 40 mínútur eða þar til miðjan er alveg bökuð. 
Kakan tilbúin og lyktin dásamleg, leyfið kökunni að kólna aðeins áður en þið berið hana fram. 
Heit karamellusósa. 
120 g smjör
1 1/2 dl rjómi
120 g púðursykur

Búið til karamellusósuna með því að hita öll hráefnin í potti þar til fer að sjóða, hræra reglulega í pottinum til að leysa upp sykurinn. Lækkið hitann þegar suðunni er náð og hrærið þar til þið hafið náð ágætri þykkt á karamellunni. Ég vil ekki hafa hana of þykka svo ég hræri ekki mjög lengi. 

Kakan er vissulega góð ein og sér en karamellusósan er eiginlega nauðsynleg. 
Hellið duglega af karamellunni yfir, því meiri karamella því betri verður kakan að mínu mati. Þið getið auðvitað sett karamelluna í sér skál og fólk skammtar sér á sinn disk að vild. 
Lyktin og bragðið fór með mig í pínku litla eldhúsið á veitingastaðum sem ég vann á í Oxford í Bretlandi. Þar naut ég þess að gæða mér á sticky toffee pudding í pásum. 

"One for the customer and one for me" 
 Mér finnst kakan best með vanilluís en gott er bera hana fram með rjóma líka. 

Ég mæli svo sannarlega með að þið prufið þessa gómsætu köku kæru vinir. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

3 comments:

  1. Þetta verður maður að prófa við tækifæri! Takkf fyrir að deila þessu :)

    ReplyDelete
  2. Bakaði þessa í gær. Afskaplega góð!

    ReplyDelete
  3. Nammi namm, þessa verð ég að prufa! Hef þessa á sunnudaginn með kaffinu :)
    Bestu kveðjur úr Stokkhólmi :*

    ReplyDelete